sunnudagur, febrúar 15, 2009

Reaksjóner versus últrareaksjóner

Nú man ég eftir sögu úr hinu óendanlega skemmtilega riti Minningar úr menntaskóla, Vol. II.

Í Menntaskólanum í Reykjavík lifðu þéringar miklu lengur en í Menntaskólanum á Akureyri. Munurinn var hins vegar sá að í Menntaskólanum á Akureyri var sagt: „Eruð þér mættur?“ en í Menntaskólanum í Reykjavík var sagt: „Eruð þér mættir?“

Þetta heitir að vera með kústskaft í rassgatinu og er að öllu leyti virðingarvert og skemmtilegt.

En svo komu hipparnir og eyðilögðu þéringar á sjöunda áratugnum eins og margt annað í samfélaginu.